Fékk rosalegan blogg anda yfir mig í dag en svo var
ég svo lengi að komast inn að hann fór. Þaannniiig að ég ætla
bara að skila smá páskakveðju heim og segja að það er smáááá
löngun að heima í fjallaloftinu um páskana. En það er
allt í lagi við höfum það gott hérna í Kína. Ég er rétt að
ljúka við hamskiptin hérna eftir sólarferðina fékk
nýtt bak og nýja bringu. 
En
annars fyrst ég er byrjuð þá held ég að andinn sé kominn
smá aftur... Ferðin til Sanya var geggjuð ef tekið er
frá smááá bruni og moskítóbit en hægri hliðin á mér var alveg
étin af moskító. Ströndin var æði og segja myndirnar
allt....
og
maturinn var geggjaður...

Gott að
taka svona smá tilbreytingu á páskana og vera í sól og sjóðandi
hita í staðin fyrir sól og sjóðandi kulda í snjónum á ísó...
Hitinn þarna var alveg ógurlegur þannig að það var bara flatmagað
strax á fyrsta degi kannski of mikið sem varð svo að bringan
og efri hlutinn af bakinu fengu ekki að fara í sól
aftur. Kokteila planið stóðst ekki alveg eins og ætlað var en
ölið rann ljúft niður en ég á tímabili farin að halda að Sanya
búar drykkju bara ekki kokteila þangað til síðasta daginn þegar við
fundum einn alvöööruu alveg geggjaða
kokteilbar 



Skál
fyrir því og auðvita eru komnar myndir frá ferðinni á myndasíðuna
mína!!!
Nú er maður komin aftur "heim" til Shanghai. Fórum
út að borða í gær í tilefni föstudagsins langa á Indverskan stað
sem var ótrúlega góður og er planið á morgun að skella sér aftur út
að borða aftur og fá sér góða páskasteik.
Í Kína
eru sko engir páskar, það sést ekki einu sinni eitt lítið
páskaskraut og var ég nú ekki allt of hrifin að vera í skólanum á
föstudaginn langa frá átta til fjögur. Sögðum kínverskukennaranum
okkar að það væri sko holliday in iceland en hún hélt bara áfram að
kenna okkur hvernig stafirnir segja með leikrænum tilburðum með
höndunum. En verð samt að segja að kínverskutímarnir eru mjög
skemmtilegir og eru tveir kennarar að kenna okkur ein ung og ein
gömul. Þær eru mjög fínar á sinn háttin unga kennir bara bókina á
súperhraða en sú gamla er ferlega hress og er eiginlega aldrei í
bókinni heldur spyr okkur hvað við viljum læra að segja á
kínversku. Núna erum við búin að læra hvernig á að prútta á
markaðnum og hringja og panta pítsu og hvernig á að spurja hvort að
megi máta og hvort það passi eða maður vilji stærri eða minni
stærð. ( ekki að ég geti haft það utanbókar eftir í augnablikinu en
ég á það á blaði með skiljanlegum stöfum
)
En ég
ætla að láta þetta duga í bili í kínalandinu og sendi öllum heima
kærar páskakveðjur með smá öfundartóni sérstaklega til þeirra sem
eru á aldrei fór ég suður akkúrat núna.
Brynja
Ps.
gleymdi alltaf að nefna það eftir að ég gaf upp kínanúmerið mitt að
ég get ekki fengið sms frá íslandi þannig að ef einhver er búin að
vera svo sætur að senda mér sms þá er hann æði en ég hef því miður
ekki fengið það
En þá er bara tilvalið að allir skili eftir
sig kveðju hérna
