Prinsessu lífið heldur
áfram..... síðasta blogg var um hvað
var gaman í sanya en núna er ég einmitt á leiðinni í aðra
ferð og er ferðinni heitið til Filippseyja á eyju sem heitir
Boracay
Þar er hvítur sandur (sem by
the way á ekki að hitna) og þar ætla ég að sóla mig næstu tíu
daga. Hér er linkur á hótelið sem við
verðum á..... http://www.turtleinnboracay.com/index.htm
Annars er
allt gott að frétta hérna frá Kína. Maður gerir alltaf eitthvað
nýtt á hverjum degi og ég held áfram að eyða peningum eins og ég
fengi borgað fyrir það...hmmm hvernig væri það, hver býður sig
fram???
Fórum í dýragarð á sunnudaginn og má segja að ég hafi gengið í
barndóm aftur svo gaman fannst mér að skoða dýrin og það eru komnar
inn myndir af því á myndasíðuna mína. Sáum þar simpansa sem var
ekki í svona lokuðu búri heldur eins konar eyju með síki í
kringum. Hann var ansi fjörugur og henti meðal
annars alls konar drasli í okkur og maður varð passa sig vel til að
verða ekki fyrir dósum eða mold og grjóti. Síðan
henti einhver til hans vatnsflösku og gaurinn tók hana bara
skrúfaði tappann af og fékk sér að drekka eins og hann hafi aldrei
gert annað. Hér
má sjá annan vin minn sem ég hitti í
dýragarðinum
Ég má til
með að ræða aðeins leigubílaferðirnar og eru þær allar spes út af
fyrir sig en það kemur fyrir að maður þurfi liggur við áfallahjálp
eftir leigubílaferðirnar hérna eins og ein um daginn þar sem hann
keyri aftaná næstum þrisvar og næstum fjórum sinnum á gangandi
vegfaranda og einu sinni á mann á vespu auk þess sem hann tók
stórsvig á hraðbrautunni. Lennti líka í einum
sem rataði ekki það sem hann var að fara sem var by the way í
miðbæinn. Það reddast nú oft með því að leigubílstjórinn talar við
næsta bíl eða við látum taxi driverana talast við í síma því við
erum alltaf á tveimur leigubílum. En þessi byrjaði að
spurja okkur hvert hann ætti að fara leið og
hann var búin að keyra út um hliðið heima hjá okkur, ratvísi okkar
hérna er náttla mjög takmörkuð og talaði hann við tvo bíla við
hliðiná á ljósum og virtist svona vera að fara rétta leið þangað
til að hann var rétt lagður af stað á ljósunum þegar hann byrjar að
spurja okkur aftur hvert hann ætti að keyra, okkur leist náttla
ekkert á blikuna þannig að við hringjum í fólkið í næsta leigubíl
til að láta hann tala við taxidriverin þeirra, þá virtist hann vita
hvert hann væri væri að fara því hann fór að gefa betur í eða úr 20
í 40 km hraða. Þangað til einni mínútu seinna þegar hann fer að
spurja okkur aftur hvert hann eigi að far. Þá var mér misboðið og
við strunsuðum út úr leigubílnum út á miðri götu og er það í annað
sinn sem ég strunsa út úr leigubíl hérna í kína vegna óratvísi
leigubílstjórans.
En ég
ætla ekki að bulla í ykkur meira heldur endilega skoðið myndirnar
mínar því myndir segja alltaf miklu meira. Læt
næst heyra í mér þegar ég kem heim frá boracay. Maí mánuður er
fullskipaður af skemmtilegum atburðum og áður en ég veit af verð ég
komin aftur en tíminn hérna flýgur alveg frá manni. Æsispennandi
tímar
framundan....
brynjakínó